Skilmálar

Skilmálarnir gilda um notkun Keflisins til að útbúa beiðnir, senda umsóknir, birta verkefni og halda utan um stöðu.

Útgáfa 1.1 · Gildir frá 29. ágúst 2026

Hlutverk Keflisins

Keflið miðlar upplýsingum og tengir saman leitendur og þjónustuveitendur, en er ekki aðili að samningi þeirra á milli, ræður ekki verði eða verktilhögun og ábyrgist ekki að samkomulag náist eða að verk verði unnið.

Staðfesting aðgerða

Beiðni er sýnd til yfirferðar áður en hún er birt sem verkefni, og umsókn til valins þjónustuveitanda er síðar sýnd og staðfest sérstaklega. Með hverri staðfestingu samþykkir þú efnið á skjánum og þá aðgerð sem þar kemur fram. Innskráning eða rafræn auðkenning sannar aðgang en kemur ekki í stað staðfestingar.

Upplýsingar og uppruni

Þú berð ábyrgð á að upplýsingar sem þú gefur upp séu réttar og lögmætar. Upplýsingar um auðkenni, opinber réttindi, þjónustuveitandann sjálfan og umsagnir geta komið úr ólíkum áttum. Upprunamerki sýna hvaðan upplýsingarnar koma en tryggja ekki gæði, framboð eða niðurstöðu þjónustu.

Skráning þjónustuveitanda

Skráning þjónustuveitanda getur falið í sér að símanúmer eða netfang úr opinberri skrá sé sýnt á veitandaspjaldi þegar leit gefur eina ótvíræða samsvörun, svo leitendur geti haft samband. Veitandi getur óskað eftir fjarlægingu með því að velja Tilkynna á veitandaspjaldinu í Aðstoð.

Heimiluð notkun

Ekki má nota Keflið til að villa á sér heimildir, senda ólöglegt eða skaðlegt efni, afla persónuupplýsinga án heimildar, komast fram hjá aðgangsstýringum eða trufla þjónustuna. Keflið getur takmarkað eða lokað aðgangi þegar slíkt er nauðsynlegt til að verja notendur, gögn eða rekstur.

Breytingar og samband

Ný útgáfa skilmála fær nýtt útgáfunúmer og gildistökudag. Verulegar breytingar verða kynntar áður en þær taka gildi. Spurningar um skilmálana má senda í gegnum síðuna Hafa samband.